Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 195. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Prentað upp.

Þskj. 401  —  195. mál.
Formbreyting.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um almannatryggingar, lögum um félagslega aðstoð, lögum um sjúklingatryggingu, lögum um heilbrigðisþjónustu, lögum um málefni aldraðra og lögum um eftirlaun til aldraðra.

Frá minni hluta heilbrigðisnefndar.



    Minni hluti heilbrigðisnefndar telur afar mikilvægt þegar gerðar eru umfangsmiklar breytingar á heilbrigðisþjónustu og almannatryggingum að þess sé gætt að allir njóti jafns aðgangs að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag og félagslegri stöðu. Einnig telur minni hlutinn að undir engum kringumstæðum megi setja heilbrigðisþjónustu undir skilmála markaðskerfisins þar sem hagnaðar- og viðskiptasjónarmið eru grundvöllur starfseminnar og vísar til umsagnar ASÍ við frumvarp þetta.
    Frumvarpinu er í meginatriðum ætlað tvíþætt hlutverk, annars vegar að breyta lögum vegna tilfærslu málaflokka frá heilbrigðisráðuneyti til félags- og tryggingamálaráðuneytis í samræmi við stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar og hins vegar að koma á fót nýrri stofnun sem heyri undir heilbrigðisráðuneyti sem sjái um sjúkra- og slysatryggingar ásamt kaupum á heilbrigðisþjónustu.
    Í 18. gr. frumvarpsins er fjallað um nýja stofnun sem heyra mun undir heilbrigðisráðherra og ætlað er að annast kaup, greiðslur og samninga um heilbrigðisþjónustu og framkvæmd þeirra málaflokka almannatrygginga sem heyra undir heilbrigðisráðherra. Gert er ráð fyrir að nánar verði kveðið á um skipulag og hlutverk þessarar stofnunar í sérstöku frumvarpi sem lagt verði fram á vorþingi árið 2008. Hlutverk og starfsemi þessarar stofnunar er því algerlega óskilgreint og því væri eðlilegast að fella þessa grein niður.
    Minni hlutinn telur hætt við því að slegið verði af faglegum kröfum um læknis- og hjúkrunarþjónustu á öldrunarstofnunum gangi ákvæði 20. gr. frumvarpsins fram. Minni hlutinn ítrekar að öldrun er ekki sjúkdómur en henni fylgja gjarnan veikindi og oftar en ekki fjölþættir sjúkdómar. Slíkir einstaklingar þurfa ekki einungis öldrunar- og umönnunarþjónustu, heldur faglega læknis- og hjúkrunarþjónustu. Vandséð er hvernig fjárveitingar til að tryggja nauðsynlega mönnun fagmenntaðs fólks eigi að fást þegar fagleg yfirstjórn og fjármögnun er á höndum annars ráðuneytis. Því telur minni hlutinn að umræddur flutningur á faglegri yfirstjórn og fjármögnun geti leitt til þess að áherslur á hjúkrunarþjónustu á hjúkrunarheimilum breytist yfir í áherslur á almenna öldrunar- og umönnunarþjónustu. Það yrði mikil þjónustuskerðing og afturför. Minni hlutinn hvetur því til endurskoðunar á þeim hugmyndum sem fram koma í frumvarpi þessu um að færa faglega yfirstjórn og fjármögnun hjúkrunarheimila frá heilbrigðisráðuneyti til félags- og tryggingamálaráðuneytis.
    Í 36. gr. frumvarpsins er fjallað um gildistöku nýrra laga en lögin eiga að öðlast gildi 1. janúar 2008. Minni hlutinn telur þá dagsetningu óraunhæfa í ljósi ónógs undirbúnings og þess að hvorki er gert ráð fyrir framlögum í fjárlögum til hinna nýju stofnunar né viðbótarframlagi til Tryggingastofnunar vegna viðbótarkostnaðar, á borð við aukið vinnuframlag starfsmanna, við uppstokkun stofnunarinnar. Það gefur auga leið að breyta þarf miklu í starfsemi Tryggingastofunar og að byggja upp aðra stofnun frá grunni enda er gert ráð fyrir því í frumvarpi þessu að breytingin hafi komið að fullu til framkvæmda frá og með 1. september 2008.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Minni hlutinn tekur undir og vísar til álits minni hluta allsherjarnefndar þar sem lagt er til að svonefndum bandormi um tilflutning verkefna milli ráðuneyta verði vísað frá. Ljóst er að frumvarp þetta um breytingu á lögum um almannatryggingar, lögum um félagslega aðstoð, lögum um sjúklingatryggingu, lögum um heilbrigðisþjónustu, lögum um málefni aldraðra og lögum um eftirlaun til aldraðra hefði með réttu átt heima í áðurnefndum bandormi.
    Leggur minni hlutinn til að frumvarpinu verði vísað frá með svofelldri

RÖKSTUDDRI DAGSKRÁ:


    
    Þar sem frumvarp þetta er afar illa undirbúið og einungis tilkomið vegna ágreinings milli heilbrigðisráðuneytis og félagsmálaráðuneytis leggur minni hlutinn til að málinu verði vísað frá og tekið fyrir næsta mál á dagskrá.

Alþingi, 5. des. 2007.



Álfheiður Ingadóttir,


frsm.


Dýrleif Skjóldal.


Jón Björn Hákonarson.